Heim arrow Um SUBWAY arrow Markmið SUBWAY®
Um SUBWAY
Við styðjum þig
Hafa samband
Saga SUBWAY® á Íslandi
Saga SUBWAY®
Staðirnir
Markmið SUBWAY®
Markmið SUBWAY®  

"Borðum ferskt, verum græn" er okkar leið til að láta ykkur vita að ásetningur okkar er að láta gott af okkur leiða í öllum okkar verkum.

SUBWAY hefur ásett sér að bjóða upp á fjölbreyttan, bragðgóðan og næringarríkan mat á sama tíma og áhersla er lögð á að vera umhverfisvæn og hafa þannig jákvæð áhrif á samfélögin sem við þjónustum um víða veröld.

Við erum á ferðalagi. Okkar sýn er að gera SUBWAY veitingastaðina eins umhverfisvæna og samfélagslega ábyrga og kostur er. Á hverjum degi vinnum við hörðum höndum að því að stýra viðskiptum okkar þannig að þau hafi jákvæð áhrif á umhverfið á sama tíma og þau auka lífsgæði viðskiptavina okkar, söluleyfishafa (franchisees), starfsfólks, söluaðila og samfélaga víða um heim. Það er okkar trú að með því að standa fyrir góðum og umhverfisvænum viðskiptaháttum aukum við hag sérleyfishafa okkar, aukum á jákvæða upplifun viðskiptavina okkar á sama tíma og við stuðlum að verndum plánetunnar.

Við leggjum áherslu á:

  • Að halda áfram að þróa matseðla okkar með það að leiðarljósi að bjóða upp á bragðgóða, næringarríka valkosti ásamt því að veita aðgengilegar upplýsingar um næringu og hvernig má stuðla að heilbrigðum lífsstíl.
  • Að tryggja að matvæli okkar uppfyllu ströngustu skilyrði hvað varðar gæði og öryggi.
  • Að stuðla að sjálfbærum og hagkvæmum lausnum sem þjóna viðskiptaþörfum sérleyfishafa okkar.
  • Að frumkvæði okkar hvað varðar sjálfbærni beinist m.a. að orkusparnaði, vatnsverndun og endurvinnslu.
  • Að hvetja sérleyfishafa okkar til að leggja sitt af mörkum fyrir samfélagið, stuðla að fjölbreytileika og velja umhverfisvæna kosti og viðskiptahætti.

Sem leiðandi fyrirtæki hvað varðar hollustu leggur SUBWAY áherslu á að bjóða upp á úrval bragðgóðra valkosta fyrir viðskiptavini sýna um allan heim. Upplýsingar um næringarinnihald eru aðgengilegar á vefnum þannig að viðskiptavinir okkar geta verið vel upplýstir um valkosti sýna. Við vinnum stöðugt að því að bæta matseðla okkar og næringargildi þess sem þar er boðið upp á.

Fjölbreytt hollusta

  • Úrval fitusnauðra báta sem innihalda minna en 3 grömm af fitu í hverjum 100 grömmum
  • Engar viðbættar transfitur
  • Úrval af fersku grænmeti þannig að Þú getur fengið hluta af þínum ráðlagða dagskammti.
  • Samsetning flókinna kolvetna, próteina, steinefna og vítamína fyrir viðskiptavini sem velja hollustu.

Öryggi hvað varðar hráefni og gæði er okkur gríðarlega mikilvægt. Birgjar okkar verða að uppfylla ströngustu skilyrði SUBWAY og er þannig tryggt að aðeins besta mögulega hráefni rati inn á SUBWAY veitingastað.

SUBWAY, í samstarfi við ýmsa sjálfstæða aðila og fyrirtæki, leggur ríka áherslu á að sýna frumkvæði hvað varðar sjálfbærni sem tekur mið af orkunýtingu, vatnsvernd, endurvinnslu, uppruna o.fl. Við styðjum af heilum hug lögmál þau er lúta að ábyrgum landbúnaði, fiskveiðum og dýravernd – fyrir sjálfbærni auðlinda jarðarinnar til lengri tíma.

Við leggjum áherslu á umhverfisvænar umbúðir, hreinlætisvörur og endurvinnslu um leið og við leitum áhrifaríkari leiða í öllum okkar rekstri. Það er sérleyfishöfum SUBWAY að þakka og samstarfsaðilum að margar umhverfisvænar lausnir hafa verið kynntar til skjalanna og eru nú hluti af grundvallaráherslum okkar. Að þessu er unnið áfram á hverjum degi.

Allir SUBWAY veitingastaðir eru í einkaeign og reknir af sjálfstæðum sérleyfishöfum. Margir af sérleyfishöfum SUBWAY gefa sig út fyrir að vera virkir og umhyggjusamir þegnar í samfélagi sínu og hvetja til fjölbreytileika. Þá kjósa margir umhverfisvæna kosti og viðskiptahætti eins og t.d. að spara raforku, vatn og draga úr sorpsöfnun með endurvinnslu.

Við erum stolt af árangrinum sem hefur náðst en vitum að það er margt fleira sem þarf að gera. Saman getum við náð árangri.


Hér erum við Matseðill Starfsumsókn Hafa samband
Netvistun - Heimasíðugerð, hugbúnaðarlausnir og hönnun